Ég ætla að bætast í hóp allra þeirra sem eru búnir að viðra skoðun sína á veðrinu á netinu í dag.
Þetta veður er náttúrulega ekki hægt, það er enginn sjarmi eða gleði yfir því.
Eins og það að finna fyrir smá rigningu og roki út er huggulegt þegar maður hefur tækifæri að vera inn fyrir en, þetta slær öll met. Hræðslan um að gluggarnir eða hurðin fjúki burt er of mikil.
ENN eftir mjög svo annasaman dag í vinnunni þar sem Off Venue tónleikar með Myrru Rós bókstaflega fyllti húsið og áttavilltir túristar leituðu skjóls undan veðrinu, þá ákvað ég að ná smá huggulegri stund með kertaljós í lopasokkunum og með rjúkandi kaffibolla.
Þangað til að ég læt mig fjúka niðri í bæ til þess að standa í röð með öllum hinum á Airwaves :)
Bara ást og gleði í því.
Smá kertaljós til að gleðja og hlýja
svo hlýtt og notalegt, rétt á milli geðveikinnar.
Góða helgi
-Guðrún Ýr-
No comments:
Post a Comment